Wikivitnun:Hugtakaskrá

Úr Wikivitnun, frjálsa tilvitnanasafninu

Hugtakaská Wikivitnunar hefur þann tilgang að kynna nýliðum og vönum notendum þau hugtök sem notuð eru á íslenska hluta Wikivitnunar.

Efnisyfirlit

0–9 A Á B C D Ð E É F G H I Í J K L M N O Ó P Q R S T U Ú V W X Y Ý Z Þ Æ Ö

Efst

Aðgreiningarsíða[breyta]

Aðgreiningarsíða“ (e. disambiguation) er síða sem þjónar þeim tilgangi að veita yfirlit yfir margar merkingar á sama orði eða heiti. Dæmi um aðgreiningarsíðu er Mars (aðgreining). Til að tengja í aðgreiningarsíðu frá aðalnafni hennar skal skrifa {{aðgreiningartengill}} efst í greinina eins og gert er á Mars.

Breytingarárekstur[breyta]

Breytingarárekstur“ á sér stað þegar tveir eða fleiri gera breytingar á sömu síðu samtímis og getur það oft valdið misskilningi og ruglingi. Sjá nánar: Breytingarárekstur.

Breytingastríð[breyta]

Breytingastríð“ eða „ritstjórnarstríð“ er það þegar tveir eða fleiri notendur breyta grein ítrekað þannig að hún falli að smekk þeirra eða taka ítrekað aftur breytingar, sem hafa verið gerðar. Breytingastríð eru óæskileg og stafa oft af því að notendur hafa ekki getað komist að samkomulagi um breytingar á spjallsíðu greinar og hafa ekki getað fengið neinn til að miðla málum.

Commons[breyta]

Commons“ er sameiginlegur gagnagrunnur með myndum og margmiðlunarefni fyrir öll verkefnin sem Wikimedia-stofnunin rekur.

Flokkur[breyta]

Flokkur“ er safn greina um svipað efni sem að búinn er til sjálfkrafa í samræmi við flokkamerkingar sem settar eru í greinar. Slíkar flokkamerkingar eru á forminu [[Flokkur:Saga Íslands]] þar sem hlutinn eftir tvípunktinn er nafn flokksins. Flokkarnir falla svo undir yfirflokka og þannig á flokkakerfið að vera nokkurskonar tré sem að veitir aðgang að öllu efni Wikiquote. Sjá einnig: grunnflokkar

GFDL[breyta]

GFDL“ stendur fyrir GNU Free Documentation License sem er það frjálsa afnotaleyfi sem Wikipedia er gefin út samkvæmt. Sjá einnig grein um GFDL og Wikipedia:Höfundaréttur.

Grein[breyta]

Greinar“ eru færslur eða uppflettiorð í tilvitnanasafninu. Þær eru síður í aðalnafnrýminu, sem eru ekki tilvísanir og innihalda strenginn „[[“.

Hreingerning[breyta]

Hreingerning“ er viðgerð á grein, sem miðar að því að leiðrétta stafsetningar- og innsláttarvillur, bæta málfar og frágang, tenglaprýða o.s.frv. þannig að greinin falli vel að stöðlum Wikiquote. Hreingerning krefst einungis ritstjórnarhæfileika en ekki sérfræðiþekkingar á efni greinar, sem gæti þurft til þess að laga innihald hennar.

Interwiki[breyta]

Interwiki“ er leið til að tengjast greinum á öðrum tungumálum á sama efni. Það er gert með því að skrifa t.d. [[en:Ludwig Wittgenstein]] neðst í grein til að tengja við grein á ensku um heimspekinginn Ludwig Wittgenstein. Þessir tenglar koma fram vinstra megin á þeim síðum sem innihalda interwiki-tengla. Athugið að interwiki-tenglar eru settir neðst í hverja grein.

Kerfissíða[breyta]

Kerfissíður“ eru sjálfvirkt uppfærðar síður sem sýna ýmsa gagnlega tölfræði um verkefnið. Sjá yfirlitið yfir kerfissíður.

Nafnrými[breyta]

Nafnrými“ eru flokkar sem allar síður Wikiquote falla undir. Aðalnafnrýmið er frátekið undir greinar en önnur nafnrými eru til dæmis notendasíður eða spjallsíður. Nafnrýmið þekkist á forskeytinu við titil síðunnar, þessi síða tilheyrir t.d. Wikiquote: nafnrýminu en það er notað til að halda utan um allskyns upplýsingar varðandi verkefnið. Greinar hafa ekkert slíkt forskeyti.

MediaWiki[breyta]

MediaWiki“ er hugbúnaðurinn sem Wikipedia og önnur Wikimedia-verkefni keyra á. MediaWiki er frjáls hugbúnaður.

Melding[breyta]

Meldingar“ eru textastrengir sem notendaviðmót MediaWiki-vefja (þ.á.m. Wikipediu) byggist á. Þeim má breyta, t.d. þegar hugbúnaðurinn er þýddur á nýtt tungumál. Sjá lista yfir allar meldingar.

Möppudýr[breyta]

Möppudýr“ eru æðri stjórnendur. Þeir geta breytt notandanöfnum og gert aðra notendur að stjórnendum og möppudýrum. Sjá einnig: Möppudýr

Potturinn[breyta]

Potturinn“ er almenn umræðusíða íslenska Wikiquote. Sjá Pottinn.

Ritstjórnarstríð[breyta]

Ritstjórnarstríð“: sjá „breytingastríð“ að ofan.

Síða[breyta]

Síður“ eru einstakar færslur á Wikivefnum, þær geta verið greinar, spjall, flokkar, kerfissíður o.s.frv.

Snið[breyta]

Snið“ eru síður í sniðanafnrýminu sem hægt er að fella inn í aðrar síður með því að gera {{nafn sniðs}}. Þau eru hentug til að búa til stöðluð skilaboð til að birta á mörgum síðum eða staðlaðar upplýsingatöflur. Sjá einnig lista yfir snið

Spjall[breyta]

Spjallsíður“ fylgja flestum síðum á Wikiquote. Þær eru ætlaðar til umræðu um viðkomandi síðu.

Stjórnandi[breyta]

Stjórnandi“ getur tekið þátt í að ritstýra Wikiquote. Hann getur m.a. eytt greinum sem aðrir notendur hafa sent inn. Hann getur einnig bannað aðra notendur. Sjá einnig: Stjórnendur

Tenglaprýða[breyta]

Að „tenglaprýða“ er það sama og „wikify“ á ensku og felur í sér að tengja greinar Wikiquote innbyrðis. Sjá handbókina fyrir leiðbeiningar um hvernig hægt er að búa til tengla.

Tilvísun[breyta]

Tilvísun“ er það sama og „Redirect“ á ensku. Þeim er ætlað að leiða lesandann á rétta grein þó að hann noti ekki nákvæmt nafn hennar í leitinni. Tilvísun er sett inn í grein á með því að gera: #tilvísun [[Grein sem vísa skal í]]. Dæmi um þetta er vinur sem leiðir lesandann á vinátta.

Wiki[breyta]

Wiki“ er vefsíða sem notendur geta breytt með beinum hætti. Wiki-vefir eru notaðir af samvinnuverkefnum á borð við Wikipediu.

Wikibooks[breyta]

Wikibooks“ eða „Wikibækur“ er systurverkefni Wikipediu sem hefur að markmiði að búa til frjálst kennsluefni og leiðbeiningar. Sjá Wikibooks á íslensku.

Wikimedia[breyta]

Wikimedia Foundation Inc.“ eru samtök sem að halda utan um Wikipediu og systurverkefni hennar (þ.á m. Wikiquote) og reka vélbúnaðinn sem til þarf.

Wikipedia[breyta]

Wikipedia“ er frjálst alfræðirit sem Wikimedia-stofnunin rekur. Sjá Wikipedia á íslensku.

Wikiquote[breyta]

Wikiquote“ er eitt af verkefnum Wikimedia-stofnunarinnar þar sem safnað er saman tilvitnunum.

Wikisource[breyta]

Wikisource“ eða „Wikiheimild“ er systurverkefni Wikipediu sem safnar saman frumtextum sem ekki eru háðir höfundarétti. Sjá Wikisource á íslensku.

Wiktionary[breyta]

Wiktionary“ eða „Wikiorðabók“ er systurverkefni Wikipediu sem gengur út á að búa til frjálsa orðabók. Sjá Wiktionary á íslensku.


Efnisyfirlit

0–9 A Á B C D Ð E É F G H I Í J K L M N O Ó P Q R S T U Ú V W X Y Ý Z Þ Æ Ö

Efst