Trúarbrögð

Úr Wikivitnun, frjálsa tilvitnanasafninu

Tilvitnanir um trúarbrögð.

Tilvitnanir[breyta]

  • „Ástæða þess að við ættum að vera andsnúin skipulögðum trúarbrögðum er sú að ólíkt tekatli Russells eru trúarbrögðin valdamikil, áhrifamikil, undanþegin skatti og skipulega og kerfisbundið kennd börnum sem eru of ung til að verja sig. Börn eru ekki neydd til þess að eyða uppvaxtarárum sínum í að leggja á minnið bækur um tekatla. Skólar, sem eru reknir fyrir almannafé, mismuna ekki börnum sem eiga foreldra sem kunna ekki að meta rétta lögun teketilsins. Þeir sem trúa á teketilinn grýta ekki þá sem trúa ekki á teketilinn til dauða, og þá sem standa gegn tekatlinum, teketilsvillutrúarmenn og teketilslastara. Mæður vara ekki syni sína við því að giftast teketils-shiksa sem á foreldra sem trúa á þrjá tekatla í stað eins. Fólk sem setur mjólkina í fyrst rekur ekki hnéð í kviðinn á þeim sem setja teið í fyrst.“
Richard Dawkins, A Devils Chaplain.
  • „Ég held að fyrir mörgu fólki séu trúarbrögðin eins konar siðferðilegt viagra.“
„Atheism Tapes, part 6“, heimildarmynd á BBC eftir Richard Denton, tekin upp 2003, sýnd 2004
  • „Ef ég legði til að milli jarðarinnar og Mars væri postulínsteketill á braut umhverfis sólina myndi enginn getað afsannað fullyrðingu mína svo lengi sem ég gætti þess að segja að teketillinn væri of lítill til þess að við gætum séð hann jafnvel með öflugustu sjónaukum okkar. En ef ég segði að auki að úr því að ekki er hægt að afsanna fullyrðingu mína sé það óþolandi hroki af hálfu mannlegrar skynsemi að draga hana í efa, þá mætti með réttu segja að ég væri að bulla. En ef tilvist slíks teketils er staðhæfð í gömlum bókum, kennd sem heilagur sannleikur á hverjum sunnudegi, innrætt börnum í skólum, þá myndi sá sem hikar við að trúa á tilvist ketilsins vera kallaður sérvitringur og geðlæknar myndu sjá um hann á upplýsingaröld eða rannsóknarrétturinn á fyrri tímum.“
Bertrand Russell í „Is there a God?“ um sönnunarbyrði í trúmálum.
  • „G K Chesterton er gjarnan lagt þessi orð í munn: ‚Hver sem hættir að trúa á Guð trúir ekki neinu. Hann trúir öllu.‘ Hver sem sagði þetta hafði rétt fyrir sér. Við ættum að lifa á öld efahyggju. Raunin er sú að við lifum á tímum hryllilegrar trúgirni.“
Umberto Eco í greininni „God isn't big enough for some people“.
  • „Það er mjög óþægilegt að verða að vera þátttakandi í trúarlegum athöfnum ef maður trúir ekki. Það er leiðinlegt að verða að hlusta á trúarlegar áskoranir ef maður trúir ekki. Það skiptir engu máli hvort viðkomandi trúarbrögð teljast góð eða slæm. Slíkt gæti næstum fallist undir andlega kúgun. Mér virðist sem prestar hér á landi vanmeti þennan tilfinningalega þátt og hvaða áhrif hann gæti haft á líðan barna í minnihlutahópum.“
Toshiki Toma, prestur innflytjenda, í greininni „Frekari umræða óskast um samskipti skóla og kirkju“ í Fréttablaðinu og á Vísi.is þann 17. desember 2010.

Tenglar[breyta]

Wikipedia hefur grein um