Latnesk orðatiltæki
Eftirfarandi er listi með latneskum orðtökum og málsháttum.
A B C D E F G H I eða J L M N O P Q R S T U eða V
A[breyta]
- „Vinurinn er annað sjálf“
- Latína: Alter ipse amicus
- Upprunalega úr Siðfræði Níkómakkosar 1166a31 eftir gríska heimspekinginn Aristóteles
- „Föðurlandsástin er okkar lög“
- Latína: Amor patriae nostra lex.
- „Lærðu eða farðu!“
- Latína: Aut disce aut discede
B[breyta]
- „Stríð allra gegn öllum“
- Latína: Bellum omnium contra omnes
C[breyta]
- „gríptu augnablikið“
- Latína: Carpe diem
- Horatius, Carmina I.11
- „Varastu hundinn“
- Latína: Cave canem
- „Ég hugsa, þess vegna er ég.“
- Latína: Cogito ergo sum
- René Descartes í Orðræðu um aðferð
D[breyta]
- „Deildu og drottnaðu!“
- Latína: Divide et impera!
- „Við lærum með því að kenna“
- Latína: Docendo discimus.
E[breyta]
- „Að vera er að vera skynjaður“
- Latína: Esse est percipi
- „Ekkert verður til úr engu.“
- Latína: Ex nihilo nihil fit.
F[breyta]
- „Flýttu þér hægt!“
- Latína: Festina lente!
- „Verði ljós!“
- Latína: Fiat lux!
- Úr Vúlgötunni, latneskri þýðingu Biblíunnar, 1. Mósebók
- „Lukkan er blind“
- Latína: Fortuna est caeca
G[breyta]
- „Grikkland hernumið hernam villtan sigurvegarann“
- Latína: Graecia capta ferum victorem cepit
H[breyta]
- „Bækur eiga sín örlög“
- Latína: Habent sua fata libelli.
- „Ég er maður, ég tel mér ekkert mannlegt óviðkomandi“
- Latína: Homo sum, humani nihil a me alienum puto.
I[breyta]
Athugið: I og J eru sami stafurinn í latínu.
- „Vanþekking á lögum er ekki afsökun“
- Latína: Ignorantia legis non excusat
- „Í víni er sannleikur“
- Latína: In vino veritas.
L[breyta]
- „Maður er manni vargur.“
- Latína: Lupus est homo homini.
M[breyta]
- „Heilbrigð sál í hraustum líkama“
- Latína: Mens sana in corpore sano
N[breyta]
- „Enginn dansar allsgáður, nema hann sé ef til vill brjálaður“
- Latína: Nemo saltat sobrius nisi fortasse insanit.
- „Enginn er lastalaus maður“
- Latína: Nemo sine vitio est.
- „Þekktu sjálfan þig!“
- Latína: Nosce te ipsum!
- Latnesk útgáfa einkunnarorða véfréttarinnar í Delfí
- „Nú skal drukkið“
- Latína: Nunc est bibendum
- Hóratíus, Carmina I.37.1
O[breyta]
- „Hvílíkir tímar! Hvílíkir siðir!“
- Latína: O tempora, o mores
- Cicero, Gegn Catilinu I
- „Þeir mega hata svo lengi sem þeir óttast“
- Latína: Oderint dum metuant
- „Ástin sigrar allt“
- Latína: Omnia vincit amor
- Virgill, Eclogae 10.69
P[breyta]
- „Brauð og leikar“
- Latína: Panem et circenses
Q[breyta]
- „Sá vinnur sem þorir“
- Latína: Qui audet vincit.
R[breyta]
- „Róm var ekki byggð á einum degi“
- Latína: Roma die uno non aedificata est
S[breyta]
- „Það er ekkert nýtt undir sólinni“
- Latína: Sub sole nihil novi est
T[breyta]
- „Ég óttast Grikki, einnig þegar þeir færa gjafir“
- Latína: Timeo Danaos et dona ferentes
- Virgill, Eneasarkviða II.49
V[breyta]
Athugið: U og V er sami stafurinn í latínu.
- „Þar sem er reykur, þar er eldur“
- Latína: Vbi fumus, ibi ignis
- „Ég kom, ég sá, ég sigraði“
- Latína: Veni Vidi vici.
- „Sannleikurinn sigrar allt“
- Latína: Vincit omnia veritas.