Marcus Tullius Cicero
(Endurbeint frá Cicero)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8a/Bust_of_Cicero_%281st-cent._BC%29_-_Palazzo_Nuovo_-_Musei_Capitolini_-_Rome_2016.jpg/220px-Bust_of_Cicero_%281st-cent._BC%29_-_Palazzo_Nuovo_-_Musei_Capitolini_-_Rome_2016.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/81/Cicero_Denounces_Catiline_in_the_Roman_Senate_by_Cesare_Maccari_-_3.jpg/300px-Cicero_Denounces_Catiline_in_the_Roman_Senate_by_Cesare_Maccari_-_3.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e8/Svedomsky-Fulvia.jpg/350px-Svedomsky-Fulvia.jpg)
Marcus Tullius Cicero (106 – 43 f.Kr.) var rómverskur stjórnmálamaður, rithöfundur og heimspekingur.
Tilvitnanir
[breyta]- „Ég get aðeins hvatt ykkur til að setja vináttuna ofar öllu öðru hér í heimi því ekkert er í jafn miklu samræmi við innsta eðli mannsins. Það er ekkert sem hefur meira gildi, hvort heldur vel gengur eða á móti blæs.“
- Um vináttuna V.17 (þýð. Margrétar Oddsdóttur).
- „Það réttlætir þess vegna ekki syndina að hún hún hafi verið framin fyrir vináttu sakir.“
- Um vináttuna XI (þýð. Margrétar Oddsdóttur).
- „Hvílíkt hnoss að vera laus undan ofurvaldi fýsna og metnaðar, illdeilna, fjandskapar og ástríðna. Það er eins og hugurinn sé laus úr herþjónustu, snúinn heim og leiti lífsnautnar í eigin barmi. Ef ellinni gefst færi á að næra sálarlífið og svala fróðleiksfýsn sinni, þá veit ég ekkert æviskeið unaðslegra en kyrrlátt ævikvöld.“
- Um ellina XIV.49 (þýð. Kjartans Ragnars).
- „Hvernig stendur á því að hinir vitrustu menn taka dauðanum að mestu jafnaðargeði, en þeir sem heimskastir eru af mestri örvæntingu?“
- Um ellina 83 (þýð. Kjartans Ragnars).