Gunnar á Hlíðarenda
Úr Wikivitnun, frjálsa tilvitnanasafninu
Gunnar Hámundarson, einnig þekktur sem Gunnar á Hlíðarenda, var íslenskur höfðingi á 10. öld. Hann er ein af aðalpersónunum í Brennu-Njáls sögu.
[breyta] Úr Brennu-Njáls sögu
-
„Sárt ert þú leikinn Sámur fóstri og búið svo sé til ætlað að skammt skuli okkar í meðal.“
-
„Fögur er hlíðin svo að mér hefir hún aldrei jafnfögur sýnst, bleikir akrar en slegin tún, og mun eg ríða heim aftur og fara hvergi.“
-
„Gunnar mælti til Hallgerðar: „Fá mér leppa tvo úr hári þínu og snúið þið móðir mín saman til bogastrengs mér.“ Hallgerður svarar á móti: „Liggur þér nokkuð við?“ Gunnar mælir: „Líf mitt liggur við, því að þeir munu mig aldrei fá sóttan meðan eg kem boganum við.“

