„Wikivitnun:Hugtakaskrá“: Munur á milli breytinga

Úr Wikivitnun, frjálsa tilvitnanasafninu
Efni eytt Efni bætt við
Cessator (spjall | framlög)
New page: '''Hugtakaská''' Wikiquote hefur þann tilgang að kynna nýliðum og vönum notendum þau hugtök sem notuð eru á íslenska hluta Wikiquote. {{Nett efnisyfirlit}} == A == === Aðgreini...
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 1. júlí 2007 kl. 05:46

Hugtakaská Wikiquote hefur þann tilgang að kynna nýliðum og vönum notendum þau hugtök sem notuð eru á íslenska hluta Wikiquote.

Efnisyfirlit

0–9 A Á B C D Ð E É F G H I Í J K L M N O Ó P Q R S T U Ú V W X Y Ý Z Þ Æ Ö

Efst

A

Aðgreiningarsíða

Aðgreiningarsíða“ (e. disambiguation) er síða sem þjónar þeim tilgangi að veita yfirlit yfir margar merkingar á sama orði eða heiti. Dæmi um aðgreiningarsíðu er Mars (aðgreining). Til að tengja í aðgreiningarsíðu frá aðalnafni hennar skal skrifa {{aðgreiningartengill}} efst í greinina eins og gert er á Mars.

B

Breytingastríð

Breytingastríð“ eða „ritstjórnarstríð“ er það þegar tveir eða fleiri notendur breyta grein ítrekað þannig að hún falli að smekk þeirra eða taka ítrekað aftur breytingar, sem hafa verið gerðar. Breytingastríð eru óæskileg og stafa oft af því að notendur hafa ekki getað komist að samkomulagi um breytingar á spjallsíðu greinar og hafa ekki getað fengið neinn til að miðla málum.

C

Commons

Commons“ er sameiginlegur gagnagrunnur með myndum og margmiðlunarefni fyrir öll verkefnin sem Wikimedia-stofnunin rekur.

F

Flokkur

Flokkur“ er safn greina um svipað efni sem að búinn er til sjálfkrafa í samræmi við flokkamerkingar sem settar eru í greinar. Slíkar flokkamerkingar eru á forminu [[Flokkur:Saga Íslands]] þar sem hlutinn eftir tvípunktinn er nafn flokksins. Flokkarnir falla svo undir yfirflokka og þannig á flokkakerfið að vera nokkurskonar tré sem að veitir aðgang að öllu efni Wikiquote. Sjá einnig: grunnflokkar

G

Grein

Greinar“ eru færslur eða uppflettiorð í tilvitnanasafninu. Þær eru síður í aðalnafnrýminu, sem er ekki tilvísanir og innihelda strenginn „[[“.

H

Hreingerning

Hreingerning“ er viðgerð á grein, sem miðar að því að leiðrétta stafsetningar- og innsláttarvillur, bæta málfar og frágang, tenglaprýða o.s.frv. þannig að greinin falli vel að stöðlum Wikiquote. Hreingerning krefst einungis ritstjórnarhæfileika en ekki sérfræðiþekkingar á efni greinar, sem gæti þurft til þess að laga innihald hennar.

I

Interwiki

Interwiki“ er leið til að tengjast greinum á öðrum tungumálum á sama efni. Það er gert með því að skrifa t.d. [[en:Ludwig Wittgenstein]] neðst í grein til að tengja við grein á ensku um heimspekinginn Ludwig Wittgenstein. Þessir tenglar koma fram vinstra megin á þeim síðum sem innihalda interwiki-tengla. Athugið að interwiki-tenglar eru settir neðst í hverja grein.

N

Nafnrými

Nafnrými“ eru flokkar sem allar síður Wikiquote falla undir. Aðalnafnrýmið er frátekið undir greinar en önnur nafnrými eru til dæmis notendasíður eða spjallsíður. Nafnrýmið þekkist á forskeytinu við titil síðunnar, þessi síða tilheyrir t.d. Wikiquote: nafnrýminu en það er notað til að halda utan um allskyns upplýsingar varðandi verkefnið. Greinar hafa ekkert slíkt forskeyti.

M

Möppudýr

Möppudýr“ eru æðri stjórnendur. Þeir geta breytt notandanöfnum og gert aðra notendur að stjórnendum og möppudýrum. Sjá einnig: Möppudýr

P

Potturinn

Potturinn“ er almenn umræðusíða íslenska Wikiquote. Sjá Pottinn.

R

Ritstjórnarstríð

Ritstjórnarstríð“: sjá „breytingastríð“ að ofan.

S

Síða

Síður“ eru einstakar færslur á Wikivefnum, þær geta verið greinar, spjall, flokkar, kerfissíður o.s.frv.

Snið

Snið“ eru síður í sniðanafnrýminu sem hægt er að fella inn í aðrar síður með því að gera {{nafn sniðs}}. Þau eru hentug til að búa til stöðluð skilaboð til að birta á mörgum síðum eða staðlaðar upplýsingatöflur. Sjá einnig lista yfir snið

Spjall

Spjallsíður“ fylgja flestum síðum á Wikiquote. Þær eru ætlaðar til umræðu um viðkomandi síðu.

Stjórnandi

Stjórnandi“ getur tekið þátt í að ritstýra Wikiquote. Hann getur m.a. eytt greinum sem aðrir notendur hafa sent inn. Hann getur einnig bannað aðra notendur. Sjá einnig: Stjórnendur

T

Tenglaprýða

Að „tenglaprýða“ er það sama og „wikify“ á ensku og felur í sér að tengja greinar Wikiquote innbyrðis. Sjá handbókina fyrir leiðbeiningar um hvernig hægt er að búa til tengla.

Tilvísun

Tilvísun“ er það sama og „Redirect“ á ensku. Þeim er ætlað að leiða lesandann á rétta grein þó að hann noti ekki nákvæmt nafn hennar í leitinni. Tilvísun er sett inn í grein á með því að gera: #tilvísun [[Grein sem vísa skal í]]. Dæmi um þetta er vinur sem leiðir lesandann á vinátta.

W

Wikimedia

Wikimedia Foundation Inc.“ eru samtök sem að halda utan um Wikipediu og systurverkefni hennar (þ.á m. Wikiquote) og reka vélbúnaðinn sem til þarf.

Wikipedia

Wikipedia“ er frjálst alfræðirit sem Wikimedia-stofnunin rekur.

Efnisyfirlit

0–9 A Á B C D Ð E É F G H I Í J K L M N O Ó P Q R S T U Ú V W X Y Ý Z Þ Æ Ö

Efst