„Magnús“: Munur á milli breytinga
Efni eytt Efni bætt við
mEkkert breytingarágrip |
mEkkert breytingarágrip |
||
Lína 18: | Lína 18: | ||
:'''Theódór''': Hva, á hvað ertu þú eiginlega að skjóta pabbi minn? |
:'''Theódór''': Hva, á hvað ertu þú eiginlega að skjóta pabbi minn? |
||
:'''Ólafur''': Ég er að fæla burt ránfugl. |
:'''Ólafur''': Ég er að fæla burt ránfugl. |
||
:'''Theódór''': Það eru |
:'''Theódór''': Það eru engvir ránfuglar hérna. |
||
:'''Ólafur''': Það er vegna þess að ég fæli þá burt jafn óðum. |
:'''Ólafur''': Það er vegna þess að ég fæli þá burt jafn óðum. |
||
Útgáfa síðunnar 30. júní 2007 kl. 03:31
Magnús er kvikmynd frá árinu 1989. Hún fjallar um lögfræðing sem er hugsanlega með krabbamein.
- Leikstjóri Þráinn Bertelsson. Handrit Þráinn Bertelsson
Tilvitnanir
- Helena: Ertu ekkert að vinna?
- Ólafur: Ekki núna. Annars er ég í Háskólanum. Svo hef ég mest verið á Kleppi... Ég var að vinna við skúringar.
- Helena: En í Háskólanum, ertu í skúringum þar líka?
- Ólafur: Það eru því miður ekki kenndar skúringar. Svo ég fór bara í guðfræði.
- Óðinn læknir: Nú er að duga eða... Ja núna er bara að standa sig.
- Magnús: Teddi, finnst þér aldrei eins og þú sért búinn að fá nóg?
- Theódór: Það kemur samt alltaf meira. Eins og til dæmis í leikhúsi. Aldrei dytti mér í hug eftir að ég er búinn að kaupa mig inn að fara aftur út án þess að sjá endirinn.
- Theódór: Hva, á hvað ertu þú eiginlega að skjóta pabbi minn?
- Ólafur: Ég er að fæla burt ránfugl.
- Theódór: Það eru engvir ránfuglar hérna.
- Ólafur: Það er vegna þess að ég fæli þá burt jafn óðum.
- Ólafur: Sástu þennan litla?
- Theódór: Hvaða litla?
- Ólafur: Nú litla lögreglumanninn. Leit alveg út eins og kvenmaður. Og ekkert ósnotur kvenmaður svosem.
- Theódór: Það er ekki nóg með að hann hafi litið út eins og kvenmaður, þetta var kvenmaður.
- Ólafur: Allan andskotann eru þeir farnir að draga í lögregluna.
- Theódór: Maður veit aldrei hvað fólk hugsar. Veistu hvað ég var að hugsa hérna rétt áðan?
- Magnús: Nei, það er ekki gott að segja.
- Theódór: Ég var að hugsa hvað það er skrítið hvað hugsanir verða alltaf asnalegar þegar maður fer að tala um þær upphátt.
- Magnús: Það er kannski þess vegna sem fólki er illa við að segja hvað það er að hugsa.
- Magnús: Hvað mundir þú til dæmis segja ef ég segði þér að ég væri með krabbamein?
- Theódór: Æ, ég veit það ekki, ég er bara ekki í stuði til að djóka.
- Theódór: Góðan daginn góðir farþegar. Þetta er Theódór Ólafsson flugstjóri... yfirflugstjóri. Nú, við nálgumst nú Reykjavík og innan skamms munu flugfreyjur kynna fyrir ykkur notkun á súrefnisgrímum, áramótagrímum, slökkvitækjum, fallhlífum, björgunarbátum, dósahnífum, salernisskálum og öðru slíku...
- Helena: Það vantar alltaf einhvern til að hlusta. Heyrirðu í mér Magnús?
- Magnús: Já ég er að hlusta.
- Helena: Elskarðu mig?
- Magnús: Heldurðu að ég búi með þér til að fá frítt inn á málverkasýningar?
- Ólafur Magnússon: Á ég ekki að opna aðra Malt? Þær verða bara volgar af því að vera þarna á borðinu.
- Magnús: Ætli ég taki Maltið í gröfina. Drekkum og verum glaðir.
- Ólafur Magnússon: [Rappar] Malt, Malt, Malt er svalt, einkum þegar það er kalt.
- Theódor: Hvað ertu að gera pabbi?
- Ólafur: Hvað, sérðu það ekki maður? Ég er að moka ofaní þennan skurð.
- Theódor: Og hvað eruð þið þá eiginlega að gera?
- Grafari: Nú, moka uppúr þessum skurði.
- Ólafur: Teddi minn, farðu nú og útvegaðu mér jarðýtu, ég er orðinn leiður á þessum kappmokstri.
- [Helena labbar inn í sjúkraherbergið og sér rúm Magnúsar tómt.]
- Sjúklingur: Ert þú kona Magnúsar?
- Helena: Hvenær?
- Sjúklingur: Gærkvöldi.
- Helena: Hvers vegna var ég ekki látin vita?
- Sjúklingur: Hann bað um að láta engan vita af því. Hann ætlaði að vera kominn aftur.
- Helena: Er hann þá... stakk hann bara af?
- Sjúklingur: Nei, hann þurfti bara að skreppa.
- Helena: Ég drep hann.
Leikendur
- w:Sigurður Sigurjónsson - Einar
- w:Egill Ólafsson - Magnús Bertelsson
- Laddi - Theódór Ólafsson
- Guðrún Gísladóttir - Helena Ólafsdóttir
- Jón Sigurbjörnsson - Ólafur Theódórsson
- Ingimar Oddsson - Ólafur Magnússon
- Erlingur Gíslason - Óðinn Læknir
- Björn Karlsson - Grafari
- Stefán Þórir Guðmundsson - Sjúklingur