Fara í innihald

Marcus Tullius Cicero

Úr Wikivitnun, frjálsa tilvitnanasafninu
(Endurbeint frá Cíceró)
.

Marcus Tullius Cicero (106 – 43 f.Kr.) var rómverskur stjórnmálamaður, rithöfundur og heimspekingur.

Tilvitnanir

[breyta]
  • „Ég get aðeins hvatt ykkur til að setja vináttuna ofar öllu öðru hér í heimi því ekkert er í jafn miklu samræmi við innsta eðli mannsins. Það er ekkert sem hefur meira gildi, hvort heldur vel gengur eða á móti blæs.“
Um vináttuna V.17 (þýð. Margrétar Oddsdóttur).
  • „Það réttlætir þess vegna ekki syndina að hún hún hafi verið framin fyrir vináttu sakir.“
Um vináttuna XI (þýð. Margrétar Oddsdóttur).
  • „Hvílíkt hnoss að vera laus undan ofurvaldi fýsna og metnaðar, illdeilna, fjandskapar og ástríðna. Það er eins og hugurinn sé laus úr herþjónustu, snúinn heim og leiti lífsnautnar í eigin barmi. Ef ellinni gefst færi á að næra sálarlífið og svala fróðleiksfýsn sinni, þá veit ég ekkert æviskeið unaðslegra en kyrrlátt ævikvöld.“
Um ellina XIV.49 (þýð. Kjartans Ragnars).
  • „Hvernig stendur á því að hinir vitrustu menn taka dauðanum að mestu jafnaðargeði, en þeir sem heimskastir eru af mestri örvæntingu?“
Um ellina 83 (þýð. Kjartans Ragnars).

Tenglar

[breyta]